Polityka wysyłki
Afhending
Pantanir má sækja í verslun okkar eða fá sendar með Dropp eða Flytjanda. Frí heimsending ef verslað er fyrir 15.000 kr. eða meira. Fyrir aðrar pantanir gildir eftirfarandi verðskrá:
| Sótt í verslun – Nýbýlavegi 10 | 0 kr. |
| Höfuðborgarsvæðið – afhendingarstaður Dropp | 890 kr. |
| Höfuðborgarsvæðið – heimsending Dropp | 1.390 kr. |
| Landsbyggðin – afhendingarstaður Dropp | 990 kr. |
| Landsbyggðin – heimsending Dropp* | 1.790 kr. |
| Landsbyggðin – afhendingarstaður Flytjanda | 1.490 kr. |
* Heimsending utan höfuðborgarsvæðisins er í boði á Akranesi, í Reykjanesbæ, á Selfossi, í Hveragerði, Þorlákshöfn, á Eyrarbakka og Stokkseyri.
Sendingar yfir 10 kg á landsbyggðina: 700 kr. bætast við verðin á landsbyggðinni – afhendingarstaður Dropp 1.690 kr., heimsending Dropp 2.490 kr. og afhendingarstaður Flytjanda 2.190 kr. Verð á höfuðborgarsvæðinu breytist ekki. Pantanir fyrir 15.000 kr. eða meira eru alltaf sendar frítt.
Afhendingarstaðir Dropp eru á N1-stöðvum og hjá öðrum samstarfsaðilum Dropp, t.d. Olís, Orkunni og Kjörbúðinni. Í greiðsluferlinu birtast þeir afhendingarmátar sem eru í boði fyrir þitt póstnúmer.
Afhendingartími
Við sendum pantanir alla virka daga. Sé pantað fyrir kl. 11:00 á virkum degi:
- Höfuðborgarsvæðið: pöntunin berst samdægurs, bæði á afhendingarstað og heim að dyrum.
- Landsbyggðin: pöntunin berst næsta virka dag.
Pantanir sem berast eftir kl. 11:00 eða um helgar fara af stað næsta virka dag. Afhending fer eftir áætlun Dropp og Flytjanda hverju sinni og getur dregist, t.d. í kringum stóra verslunardaga.
Sótt í verslun
Pantanir má sækja í verslun okkar á Nýbýlavegi 10, 200 Kópavogi, á opnunartíma þegar staðfesting hefur borist í tölvupósti um að pöntunin sé tilbúin.
Viltu sérstaka ráðstöfun við afhendingu? Skrifaðu athugasemd með pöntuninni eða hafðu samband í síma 537-5400 eða á mori@mori.is.
Upplýsingar um vöruskil eru á síðunni Skilað og skipt.
