Fara í innihald

Vörukarfa

Vörukarfan þín er tóm

Algengar spurningar

Algengar spurningar

Hvar get ég verslað vörurnar?

Þú getur verslað vörurnar okkar í verslun okkar á Nýbýlavegi 10 og í netverslun okkar.

Sendið þið hvert á land sem er?

Já, að sjálfsögðu!

Við sendum með Dropp og Flytjanda um land allt. Þegar þú hefur fyllt út heimilisfang og póstnúmer í greiðsluferlinu birtast þeir afhendingarmátar sem eru í boði fyrir þig.

Hvenær fæ ég vörurnar mínar?

Við sendum pantanir alla virka daga. Sé pantað fyrir kl. 11:00 á virkum degi berst pöntunin samdægurs á höfuðborgarsvæðinu (bæði á afhendingarstað Dropp og heim að dyrum) og næsta virka dag á landsbyggðinni. Pantanir sem berast eftir kl. 11:00 eða um helgar fara af stað næsta virka dag.

Í kringum stóra verslunardaga getur afhending flutningsaðila dregist örlítið.

Hvað kostar að fá vörur sendar?

Frí heimsending ef verslað er fyrir 15.000 kr. eða meira. Annars kostar afhendingarstaður Dropp 890 kr. og heimsending 1.390 kr. á höfuðborgarsvæðinu. Á landsbyggðinni kostar afhendingarstaður Dropp 990 kr., heimsending Dropp 1.790 kr. og afhendingarstaður Flytjanda 1.490 kr. Fyrir sendingar yfir 10 kg á landsbyggðina bætast 700 kr. við (1.690 kr., 2.490 kr. og 2.190 kr.); verð á höfuðborgarsvæðinu breytist ekki. Frítt er að sækja í verslun.

Nánari upplýsingar eru á síðunni Afhending.

Hvernig skila ég eða skipti vörum?

Einfaldast er að koma við í verslun okkar á Nýbýlavegi 10 – það kostar ekkert. Einnig má senda okkur línu á mori@mori.is til að hefja ferlið.

Þú getur hætt við netkaup innan 14 daga frá afhendingu og fengið endurgreitt. Kostnaður við að senda vöru til baka greiðist af kaupanda. Nánar á síðunni Skilað og skipt.

Hvernig greiði ég fyrir vörurnar?

Hægt er að greiða fyrir vörur í netverslun á eftirfarandi hátt:

• Greiðslukort í gegnum örugga og dulkóðaða greiðslusíðu Borgunar.

• Netgíró – hægt er að greiða strax, fá greiðslufrest eða dreifa greiðslum.

• Millifærsla í heimabanka.

• Reiðufé í verslun.

Svo tökum við að sjálfsögðu á móti inneignarnótum og gjafakortum.

Ég fékk afhenta gallaða vöru, hvað er til ráða?

Komdu við í verslun okkar á Nýbýlavegi 10 eða sendu okkur línu á mori@mori.is og við finnum út hvort þú viljir fá nýja vöru, skipta í aðra vöru eða fá endurgreitt. Við berum allan kostnað vegna gallaðra eða rangra vara.

Passar varan fyrir dýrið mitt?

Allar upplýsingar um stærðir eru í vörulýsingu hverrar vöru. Þér er svo að sjálfsögðu frjálst að koma með dýrið þitt í verslun okkar á Nýbýlavegi 10.

Ef eitthvað er óljóst, sendu okkur endilega línu á mori@mori.is eða hafðu samband símleiðis í síma 537-5400 og við svörum þér um hæl.

Get ég fengið matvöru senda heim?

Já! Við sendum mat og kattasand heim og á afhendingarstaði Dropp og Flytjanda. Úrvalið má finna í verslun okkar á Nýbýlavegi 10 og á heimasíðunni, og einnig er auðvelt að panta og sækja þegar þér hentar.