Friðhelgisstefna
Persónuverndarstefna Móra
Móri er rekinn af Lundhaven ehf., kt. 531120-0510, Nýbýlavegi 10, 200 Kópavogi („Móri“ eða „við“). Okkur er umhugað um persónuvernd viðskiptavina okkar. Í þessari stefnu kemur fram hvaða persónuupplýsingum við söfnum, í hvaða tilgangi og á hvaða grundvelli, hverjum þær kunna að vera afhentar og hvaða réttindi þú átt. Um vinnsluna gilda lög nr. 90/2018 um persónuvernd og vinnslu persónuupplýsinga og almenna persónuverndarreglugerðin (ESB) 2016/679.
Ábyrgðaraðili
Lundhaven ehf. er ábyrgðaraðili þeirra persónuupplýsinga sem unnið er með í verslun Móra og á mori.is. Fyrirspurnir um meðferð persónuupplýsinga má senda á mori@mori.is eða hringja í síma 537-5400.
Hvaða upplýsingum söfnum við?
- Pantanir: nafn, heimilisfang, netfang, símanúmer, pöntunarsaga (vörur, verð og afhendingarmáti) og samskipti vegna pöntunar. Greiðslukortaupplýsingar fara beint til greiðsluþjónustuaðila og Móri geymir þær ekki.
- Viðskiptavinaaðgangur: stofnir þú aðgang á mori.is vistum við netfang, heimilisföng og pöntunarsögu.
- Póstlisti: netfang og eftir atvikum nafn, ef þú skráir þig á póstlista.
- Fyrirspurnir og ábendingar: nafn, samskiptaupplýsingar og efni erindisins.
- Upplýsingar um gæludýr: gefir þú okkur upplýsingar um gæludýrið þitt, t.d. tegund, aldur eða þyngd vegna ráðgjafar um fóður, notum við þær eingöngu í þeim tilgangi.
- Notkun vefsins: tæknilegar upplýsingar, t.d. um tæki, vafra og IP-tölu, og upplýsingar um hvernig vefurinn er notaður, sjá kaflann um vafrakökur.
Tilgangur og heimild vinnslu
- Að afgreiða og afhenda pantanir, taka við vöruskilum og veita þjónustu. Grundvöllur: samningur.
- Vildarkjör, inneign og áskrift: takir þú þátt í fríðindum hjá Móra vinnum við með pöntunarsögu og stöðu inneignar eða fríðinda til að veita þau kjör. Grundvöllur: samningur.
- Að uppfylla lagaskyldur, t.d. samkvæmt bókhaldslögum. Grundvöllur: lagaskylda.
- Markpóstur og tilboð: eingöngu til þeirra sem hafa skráð sig. Grundvöllur: samþykki, sem afturkalla má hvenær sem er með hlekk neðst í póstinum eða með því að hafa samband.
- Öryggi og umbætur: að tryggja öryggi vefsins, koma í veg fyrir svik og bæta vefinn og þjónustuna. Grundvöllur: lögmætir hagsmunir Móra.
Við notum persónuupplýsingar ekki í öðrum tilgangi en þeim sem þeirra var aflað í og söfnum ekki meiri upplýsingum en nauðsynlegt er.
Miðlun til þriðju aðila
Móri selur aldrei né leigir persónuupplýsingar. Upplýsingum er aðeins miðlað til aðila sem þurfa á þeim að halda til að veita þjónustuna (vinnsluaðila), og þá aðeins því sem nauðsynlegt er:
- Shopify – vefverslunarkerfi og hýsing
- Greiðsluþjónustuaðilar – greiðslumiðlun
- Dropp og Flytjandi – afhending pantana (nafn, heimilisfang, símanúmer og netfang)
- Þjónustuaðilar á sviði tölvupósts, bókhalds og upplýsingatækni
Vinnsluaðilar mega einungis nota upplýsingarnar samkvæmt fyrirmælum Móra og í samræmi við vinnslusamninga. Upplýsingar kunna einnig að vera afhentar yfirvöldum þegar lagaskylda krefst þess.
Flutningur út fyrir EES
Sumir þjónustuaðilar okkar, t.d. Shopify, kunna að vinna upplýsingar utan Evrópska efnahagssvæðisins. Þá byggist flutningurinn á viðurkenndum verndarráðstöfunum, svo sem stöðluðum samningsskilmálum framkvæmdastjórnar ESB.
Varðveisla
Upplýsingar eru ekki geymdar lengur en nauðsynlegt er miðað við tilgang vinnslunnar. Bókhaldsgögn, þar á meðal reikningar vegna pantana, eru varðveitt í sjö ár samkvæmt lögum nr. 145/1994 um bókhald. Upplýsingar á póstlista eru geymdar þar til þú afskráir þig og upplýsingar í viðskiptavinaaðgangi þar til honum er eytt, nema lög kveði á um lengri varðveislu.
Vafrakökur
Vafrakökur eru litlar textaskrár sem vistast í tækinu þínu þegar þú heimsækir vefinn. Nauðsynlegar vafrakökur, t.d. fyrir körfu, innskráningu og greiðsluferli, eru alltaf virkar enda virkar vefverslunin ekki án þeirra. Vafrakökur til tölfræði og markaðssetningar eru aðeins notaðar ef þú samþykkir þær, og þú getur breytt vali þínu hvenær sem er. Einnig er hægt að eyða eða loka á vafrakökur í stillingum vafrans, en þá kann hluti vefsins að virka verr.
Öryggi
Móri gerir viðeigandi tæknilegar og skipulagslegar ráðstafanir til að vernda persónuupplýsingar gegn glötun, breytingum og óleyfilegum aðgangi. Öll samskipti við mori.is eru dulkóðuð (HTTPS).
Réttindi þín
Þú átt rétt á að:
- fá upplýsingar um og afrit af þeim persónuupplýsingum sem við vinnum um þig,
- fá rangar upplýsingar leiðréttar,
- fá upplýsingum eytt, nema okkur sé skylt að varðveita þær,
- fá vinnslu takmarkaða eða andmæla vinnslu sem byggist á lögmætum hagsmunum,
- fá upplýsingar sem þú hefur látið okkur í té afhentar á tölvutæku formi (flutningsréttur),
- afturkalla samþykki hvenær sem er. Rétturinn til að andmæla beinni markaðssetningu er skilyrðislaus.
Beiðnir má senda á mori@mori.is. Við svörum innan mánaðar. Sért þú ósátt(ur) við meðferð persónuupplýsinga getur þú kvartað til Persónuverndar (www.personuvernd.is).
Breytingar á stefnunni
Persónuverndarstefnan er endurskoðuð reglulega og ný útgáfa birt hér. Þessi útgáfa tók gildi 22. október 2026.
