Fara í innihald

Vörukarfa

Vörukarfan þín er tóm

Skilmálar þjónustu

 

Skilmálar

Móri selur vandaðar vörur fyrir hunda og ketti. Verslunin er staðsett á Nýbýlavegi 10 í Kópavogi, og á netinu á slóðinni www.mori.is.
Þú velur vöru, setur í körfu, velur greiðslufyrirkomulag og pöntunin er afgreidd um leið og greiðsla hefur borist. Í kjölfarið færðu kvittun fyrir vörukaupunum í tölvupósti og þar með er kominn á samningur á milli þín og Móri.is.
Sé vara uppseld verður haft samband við þig hið fyrsta og þér boðin önnur vara eða full endurgreiðsla.

Afhending

Pantanir eru sóttar í verslun Móra á Nýbýlavegi 10 eða sendar með Dropp eða Flytjanda og eru sendar út alla virka daga. Sendingarkostnaður fer eftir afhendingarmáta og er enginn ef verslað er fyrir 15.000 kr. eða meira. Verðskrá og afhendingartíma má sjá á síðunni Afhending.
 

Upplýsingar um seljanda

Seljandi er Lundhaven ehf., kt. 531120-0510, Nýbýlavegi 10, 200 Kópavogi. 
 

Verð

Öll verð í netverslun eru með 24% virðisaukaskatti (VSK). Vinsamlegast athugaðu að verð í netverslun geta breyst án fyrirvara, vegna rangra verðupplýsinga eða prentvillna.
 

Greiðslumátar

Á Móri.is er boðið er upp á að greiða með greiðslukorti eða með Netgíró.
Hægt er að greiða með greiðslukortum frá Visa og Eurocard/Mastercardí gegnum örugga greiðslugátt frá Borgun á Íslandi.

Réttur til að hætta við kaup og vöruskil

Kaupandi getur hætt við kaup í vefverslun innan 14 daga frá afhendingu vöru, sbr. lög nr. 16/2016 um neytendasamninga. Varan er endurgreidd innan 14 daga og upphaflegur sendingarkostnaður einnig ef öll pöntunin er send til baka.
Kostnaður við endursendingu greiðist af kaupanda. Frítt er að skila vöru í verslun Móra á Nýbýlavegi 10, 200 Kópavogi.
Réttur til að hætta við kaup gildir ekki um innsiglaðar vörur (t.d. fóður, nammi og fæðubótarefni) ef innsigli hefur verið rofið eftir afhendingu.
Sé vara gölluð eða röng ber Móri kostnað af endursendingu. Um galla gilda lög nr. 48/2003 um neytendakaup. Nánar á síðunni Skilað og skipt.

Höfundaréttur og vörumerki

Texti, grafík, lógó, myndir og allt efni á www.mori.is eru eign Lundhaven ehf. og er öll afritun og endurdreyfing bönnuð nema með skriflegu leyfi frá Lundhaven ehf. 
 

Trúnaður

Seljandi heitir kaupanda fullum trúnaði um allar upplýsingar sem hann gefur upp í tengslum við viðskiptin. Upplýsingar eru ekki afhentar þriðja aðila, að undanskildum flutningsaðilum á borð við Dropp og Flytjanda sem fá þær upplýsingar sem nauðsynlegar eru til að afhenda pöntunina, svo sem nafn, heimilisfang, símanúmer og netfang. Nánar er fjallað um meðferð persónuupplýsinga í persónuverndarstefnu Móra.
 

Varnarþing

Þessi samningur er í samræmi við íslensk lög. Rísi mál vegna hans skal það rekið fyrir íslenskum dómstólum.
 

Hafa samband

Velkomið er að hafa samband í gegnum netfangið mori@mori.is eða í síma 537-5400 ef einhverjar spurningar vakna.